Fyrstu skilaboð mín til nýja heimsins.
Þú sem gafst Ashramið,
og þú sem gafst tvö líf,
- krefjist.
Uppbyggendur og stríðsmenn, greikkið sporin.
Lesandi, ef þú hefur ekki skilið — lestu aftur,
eftir hvíld.
Það sem mun gerast, er ekki tilviljun,
laufin falla þegar þau eiga að falla.
Veturinn er aðeins fyrirboði vorsins.
Öllu er upplokið; allt er gert.
Hlíf mín mun vernda þig,
ef þú gegnir skyldum þínum.
Ég hef talað.