Í lok
vinnudags, skulum við safnast saman til að ræða um
hjartað. Það mun lyfta okkur upp fyrir hið jarðneska í
átt til fínni heims, þannig nálgumstum við svið
eldsins.
"Að sjá
með augum hjartans; að hlusta með eyrum hjartans á
hávaða heims; að horfa til framtíðar með skilningi
hjartans; að minnast þess liðna með hjartanu; þannig
verður hin ákafi að þroskast á uppgöngu sinni.
Sköpunarhæfnin stýrir hinum eldlega eiginleika og hann er
nærður af heilögum eldi hjartans. Þessvegna er leið
Helgivaldsins, braut mikillar þjónustu og andlegs
samneytis, leið einingar sem er eina upplýsta leið
hjartans. Hvernig geta birtir geislar geislað ef loginn er
ekki tendraður í hjartanu? Það eru einmitt gæði
mögnunar sem býr í hjartanu. Æðri sköpunarhæfi er
gegnsýrð af þessu mikla lögmáli. Þannig er hver
uppfylling, hvert samband og hver alheimssameining er náð
gegnum loga hjartans. Með hvaða ráðum er hægt að
leggja undirstöðu fyrir mikill skref ? Sannarlega aðeins
með hjartanu. Því er vitundin kynnt af loga hjartans.
Því
skulum við hafa í minni hina fögru aðlaðandi mögnun
hjartans sem tengir allar birtingar. Sannarlega er
silfurþráðurinn sem tengir lærisveininn og meistarann
hin mikla mögnu hjartans. Einingin milli meistarann og
lærisveinsins staðfestir kjarna allrar þróunar." Hjarta, 1