Nú getum
við hafið að nálgast eldheiminn og staðfest hin
yfirskilvitslegu tákn. Við höfum margoft bent á að þroska nauðsynlega jarðneska hæfileika.
Þekkingin kemur alltaf eftir tveim farvegum sem, þegar
þeir mætast, mynda hin fullkomna árangur. Margan
jarðneskan hæfileikan er erfitt að að höndla,
því ójarðneskar aðstæður virst afstæðar, en þær
eru engu að síður hin ríkjandi raunveruleiki. Sá
sem er vanur að hugsa á jarðneskum nótum þekkir hversu
raunverulegt lífið er í eldheiminum, í heimi geislunar,
í heimi árangurs.
Hefjum því þriðja hluta eldheims.
Engin getur fullyrt að hugsun um eldheim sé eyðileggjandi,
neikvæð né stjórnlaus. Enginn skaði getur orðið af
tilbeiðslu til hærri heima. Það er aðeins um að ræða
samhæfingu og þörf fyrir fullkomnun. Því mun engu
verða hafnað og ekkert vanhelgað eftir lestur á "Eldheimi". Þvert á móti mun hugsuðurinn læra og
fyllast ójarðneskri gleði .
Við snúum til eldheims,þegar við tölum um hærri orku, en
þar til skulum við kenna vinum að elska eldheim, heim
ljóss, heim fegurðar!