|
Tákn Agni Yoga
Eldheimur
Bók II
1934
Fólk hefur
venjulega enga hugmynd um hvernig á að nota þekkingu sem
gefin er. Þegar það heyrir um einhverja kenningu sem
virðist kunnugleg segir það með hroka, "Aftur
þetta sama sem allir vita !" Það ber ekki við að
reyna að staðreyna að hve miklu leyti það skilur þessa
kunnuglegu kenningu. Það staldrar ekki við
né íhugar hvort þessi þekking sé sett fram sem
bókmenntir, fremur en til uppbyggingar verðugs lífs.
Þekking
lífsins er ekki samansafn af óheyrðum fjarstæðum
ímyndunum. Uppruni mannkynið er mjög forn og í aldanna
rás hefur margvísleg þekking verið gefin
mannkyninu, en
hver tími hefur sinn lykil. Ef einhver lærir að þekkja
núverandi lyki , má hann fagna og vera
þakklátur fyrir þá vísbendingu
honum var gefin.
Það sýnist einfalt, en er í raun mjög erfitt.
Fólk elskar að hlusta á fréttir
fagnar nýjum leiktækjum, en fáir eru reiðubúnir að til að víkka vitund sína.
Það
getur ekki verið að ein höfuðskepnanna hafi orðið
útundan í þekkingunni. Eldurinn hefur verið nefndur
þúsund sinnum , en núna er áherslan á eldinn ekki
endurtekning heldur aðvörun um atburði sem varða örlög
jarðarinnar. Flestir geta ekki sagt í hjarta sínu að
þeir séu búnir undir hina eldlegu skírn, þó
hafa hinar elstu sagnir varað við hinu óumflýjanlega
tímabili eldsins.
|