Það sem helgast er, umvefur bræðralagshugtakið.
Það sem gleðilegast er lifir í vitundinni, -að til sé samstarf í þekkingunni.
Slíkar hugsanir staðfesta að til sé sannur samstarfsmaður.
Höfum því hugföst þau gildi sem leiða til bræðralags.
Þegar hugur er þungur og
gildin háu sýnast fjarri, minnumst þá einingar í
góðu verki.
Það er ógerlegt að snúa frá því sem
færir styrk.
Ekkert stendur sem í óeiningu er unnið; hver óhreinindi sem við
skiljum eftir eru óæskileg.
Þegar búist er til langferða þarf að þurrka af svo
vel sé skilið við.
Þannig skulum við í allri birtingu
lífsins, minnast miðju visku og réttlætis —
bræðralaginu.