Agni Yoga Society, Inc. | Agni Yoga | íslenska  

Tákn Agni Yoga

Agni Yoga

1929

     Hin blessaði meistari sem gaf bækurnar, Kallið, Uppljómun, og Samfélag nýrra tíma, hefur gefið mörg heilræðin og tákn fyrir Agni Yoga. Þessar hagnýtu leiðbeiningar var safnað saman af okkur til nota fyrir þá sem leita þekkingar.
     Sanskrit og Senzar gefa framsetningunni sérstakan blæ þar sem ekki er alltaf hægt að finna merkingu þeirra í öðrum tungumálum. Engu að síður  heldur textinn merkingu sinni nákvæmlega og viskan sem á rætur sínar í reynslu aldanna vekur athygli lesandans.

FORMÁLI 
     Yoga — þessi mikla brú til alheimsins — hefur ávallt verið til staðar. Hver vísdómur myndar sitt eigið Yoga, sem höfðar til þróunarinnar hverju sinni. Engin Yoga stefna er í andstöðu við aðra, heldur eru þær greinar sama meiðs sem breiðir úr sér og gefur örmagna ferðalangi skjól til endurnæringar.
     Þegar ferðalangurinn hefur safnað kröftum heldur hann áfram sinn veg. Hann tekur aðeins það sem er hans og er stöðugur í  leit sinni. Hann umvefur allt það góða sem hann mætir og leysir úr læðingi það sem fyrirhugað er. Hann ræður sinni einföldu löngun.
     Hafnið því ekki sem að baki Yoga stendur, heldur berið það eins og ljós inní dögun óræðra starfa.
     Fyrir framtíðina rísum við á fætur. Fyrir framtíðina endurnýjum við klæði okkar. Fyrir framtíðina þrauka við. Fyrir framtíðina erum við staðföst í viðleytni okkar. Fyrir framtíðina söfnum við kröftum.
     Fyrst skulum við taka leiðbeiningum lífsins. Þá nefnum við Yoga framtíðarinna. Við heyrum fótatak eldins nálgast, en verðum þá tilbúin að höndla bylgjur logans.
     Þessvegna, hyllum við Yoga þess liðna — Raja Yoga og staðfestum  það sem koma skal — Agni Yoga.

Tenging í íslenska útgáfu